Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 01. október 2019 10:54
Elvar Geir Magnússon
Helgi Sig kynntur hjá ÍBV í dag
Helgi Sigurðsson.
Helgi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 17:30 í Týsheimilinu en samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Helgi Sigurðsson þar kynntur sem nýr þjálfari liðsins.

Helgi hefur undanfarin þrjú ár verið þjálfari Fylkis. Hann kom liðinu upp í efstu deild og festi liðið þar í sessi.

Stjórn Fylkis ákvað í lok nýliðins tímabil að skipta um þjálfara en óvíst er hver mun taka við Árbæjarliðinu.

ÍBV endaði í neðsta sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. Portúgalinn Pedro Hipólito var rekinn á miðju tímabili og Ian Jeffs tók við stjórnartaumunum út tímabilið.

Jeffs mun að öllum líkindum verða aðstoðarmaður Helga og þeir fá það verkefni að sjá til þess að veran í Inkasso-deildinni verði ekki lengri en eitt ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner