Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 01. október 2019 15:32
Elvar Geir Magnússon
Kante og Giroud æfðu með Chelsea í dag
N'Golo Kante.
N'Golo Kante.
Mynd: Getty Images
N’Golo Kante, Olivier Giroud og Kurt Zouma gátu allir æft með Chelsea í morgun en liðið mætir Lille á miðvikudagskvöld.

Franski landsliðsmaðurinn Kante var ekki með Chelsea í úrvalsdeildarleiknum gegn Brighton um liðna helgi vegna meiðsla aftan í læri.

Miðjumaðurinn hefur aðeins spilað í þremur deildarleikjum á þessu tímabili en hann var áður meiddur á ökkla.

Einu leikmenn Chelsea sem ekki gátu tekið þátt í æfingu á þriðjudag voru Antonio Rudiger, Ruben Loftus-Cheek og Emerson Palmieri.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, viðurkenndi um helgina að hann geti ekki beðið eftir því að fá Kante aftur. Hann myndi þó ekki spila fyrr en hann væri orðinn 100% klár í slaginn.

Chelsea tapaði gegn Valencia í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar en mætir Lille í annarri umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner