Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 01. október 2019 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
Markaskorari Club Brugge lofaði að fá sér húðflúr
Fagnaði eins og Ronaldo
Mynd: Getty Images
Það er komin upp afar óvænt staða á Santiago Bernabeu, þar sem Real Madrid er tveimur mörkum undir gegn Club Brugge í hálfleik.

Nígeríski sóknarmaðurinn Emmanuel Dennis skoraði bæði mörk gestanna sem þýðir að hann mun fá sér nýtt húðflúr á næstunni.

„Það væri draumur að skora gegn Real Madrid á Bernabeu," sagði Dennis í viðtali í gær.

„Ef ég skora á morgun lofa ég að fá mér húðflúr. Sviðið gerist ekki stærra en þetta."

Dennis er 21 árs gamall og skoraði 14 mörk í 56 deildarleikjum síðustu tvö tímabil. Í haust er hann kominn með 2 mörk í 6 leikjum.

Eftir að Dennis skoraði seinna markið fagnaði hann eins og Cristiano Ronaldo.


Athugasemdir
banner
banner
banner