Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. október 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Matip og Shaqiri ekki með Liverpool á morgun
Joel Matip.
Joel Matip.
Mynd: Getty Images
Joel Matip, varnarmaður Liverpool, meiddist í leik liðsins gegn Sheffield United um síðustu helgi.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti á fréttamannafundi í dag að Matip verði ekki með í leiknum gegn Red Bull Salzburg í Meistaradeildinni annað kvöld en það sama á við um Xherdan Shaqiri.

Markvörðurinn Alisson færist nær endurkomu eftir að hafa meiðst á kálfa í fyrsta leik tímabilsins. Hann verður þó ekki með á morgun.

„Hann hefur ekki ennþá æft með liðinu en við sjáum til með leikinn gegn Leicester (5. október) og gegn Manchester United (20. október)," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner