Hinn átján ára Lamine Diaby-Fadiga hefur verið rekinn frá Nice eftir að hann rændi rándýru úri af liðsfélaga sínum, Kasper Dolberg.
Dolberg, sem er 21 árs gamall, gekk til liðs við Nice frá Ajax undir lok gluggans en þann 16. september var úrinu hans stolið úr klefa Nice en það er metið á 70 þúsund evrur.
Dolberg tilkynnti þjófnaðinn til lögreglu.

Diaby hefur verið hjá Nice síðan hann var þrettán ára gamall en eftir lögreglurannsókn þá viðurkenndi hann að hafa rænt úrinu. Hann bað liðsfélaga sína og stjórann Patrick Vieira afsökunar.
Nice taldi sig þó ekki geta gert annað en rift samningi hans.
Diaby er mjög efnilegur sóknarmaður en hann er sagður fara til Paris FC í frönsku 2. deildinni.
Athugasemdir