Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 01. október 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Simeone við aðstoðardómarann: Eistun þín eru svona lítil
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, var ekki sáttur með viðbrögð annars aðstoðardómarans í nágrannaslagnum gegn Real Madrid um helgina.

Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, var ósáttur með aðstoðardómarann og hreytti ódæðisyrðum að honum. Simeone heyrði þetta og brjálaðist en aðstoðardómarinn neitaði að gera mál úr þessu.

„Hann kallaði móður þína hóru. Hvernig geturðu leyft honum að komast upp með slíka móðgun? Hvernig? Þetta er skelfilegt! Eggin (eistun) þín eru svona lítil!" sagði Simeone við aðstoðardómarann strax eftir atvikið og myndaði tvær litlar kúlur með fingrunum.

Simeone nefndi þetta nokkrum sinnum við fjórða dómarann á hliðarlínunni, sem vildi þó ekkert aðhafast í málinu.

„Það sem gerist á vellinum verður eftir á vellinum, en aðstoðardómarinn veit alveg jafn vel og ég hvað var sagt við sig," sagði Simeone að leikslokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner