Það eru fjórir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í kvöld og verður sýnt beint frá tveimur þeirra á Stöð 2 Sport.
Breiðablik og KA eigast við í fyrsta leik kvöldsins í Pepsi Max-deild karla, áður en Víkingur R. tekur á móti KR í Reykjavíkurslag.
Blikar og KR-ingar eru í Evrópubaráttu og þurfa sigra til að klifra upp töfluna. Víkingur er í þriðja neðsta sæti deildarinnar en siglir lygnan sjó, átta stigum frá fallsvæðinu.
Að lokum er komið að stórleik kvöldsins þar sem Stjarnan mætir FH í Evrópuslag. FH er eina liðið sem getur reynt að halda í við topplið Vals, sem er með níu stiga forystu. FH er í öðru sæti með leik til góða en Garðbæingar eru engin lömb að leika sér við.
Augnablik og Völsungur eiga þá leik í Lengjudeild kvenna.
Pepsi Max-deild karla
18:00 Breiðablik-KA (Stöð 2 Sport - Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
20:15 Stjarnan-FH (Stöð 2 Sport - Samsungvöllurinn)
Lengjudeild kvenna
18:00 Augnablik-Völsungur (Fífan)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir