Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. nóvember 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Alexander-Arnold dreymir um fyrirliðabandið
Mynd: Getty Images
Hinn 21 árs gamli Trent Alexander-Arnold hefur verið að spila frábærlega með Liverpool og er lykilmaður í liði Jurgen Klopp sem situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Alexander-Arnold sem er alinn upp hjá Liverpool á sér draum, honum dreymir um að bera einn daginn fyrirliðaband liðsins.

„Ég er ekkert feiminn við að segja frá því að draumur minn er að verða fyrirliði Liverpool einn daginn," sagði Alexander-Arnold í samtali við BBC.

„En það er auðvitað ekki undir mér komið að ákveða það. Ég myndi bera fyrirliðaband Liverpool með stolti. Að bera fyrirliðaband Liverpool hefur alltaf verið draumur minn og það hvetur mig áfram við að gera vel."

„Ég hef alltaf spilað með Liverpool, Liverpool hefur alltaf verið heimili mitt. Ég hef aldrei íhugað að skipta yfir í annað lið. Þegar ég ólst upp var draumurinn alltaf að spila fyrir Liverpool, nú er ég að upplifa drauminn," sagði Alexander-Arnold
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner