Stjarnan og Diljá Ýr Zomers hafa komist að samkomulagi um að leiðir skilji.
Diljá fer út á reynslu hjá Ajax í Hollandi á næstu dögum þar sem hún verður í 10 daga.
Ajax er í 3. sæti í hollensku úrvalsdeildinni eftir sex umferðir en Anna Björk Kristjánsdóttir og félagar í PSV sitja á toppnum.
Diljá sem kom til félagsins frá FH í fyrra spilaði 16 leiki og skoraði í þeim eitt mark.

Hin 17 ára gamla Diljá er sóknarmaður en hún hefur skorað eitt mark í fimm leikjum með U17 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir