Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 01. nóvember 2019 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Independent 
Independent: Leikmenn gera vægðarlaust grín að Emery
Mynd: Getty Images
Heimildarmaður Independent á æfingasvæði Arsenal segir ástandið ekki vera sérlega bjart fyrir Unai Emery, knattspyrnustjóra.

Gengi Arsenal hefur ekki skánað frá því að Emery tók við fyrir einu og hálfu ári síðan og er greint frá því að leikmenn liðsins beri ekki nægilega mikla virðingu fyrir stjóranum.

Emery er spænskur og hefur sérstakan hreim þegar hann talar ensku. Hann býr yfir sérstökum persónuleika og eru leikmenn liðsins, sérstaklega þeir yngri, byrjaðir að gera 'mikið og vægðarlaust' grín af honum.

Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem leikmenn gera lítið úr völdum Emery. Svipað ástand kom upp þegar hann var við stjórnvölinn hjá Frakklandsmeisturum PSG.

Arsenal er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur, með 16 stig eftir 10 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner