Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. nóvember 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lampard: Deildin og Meistaradeildin skipta mestu máli
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard og lærisveinar hans í Chelsea féllu út úr deildabikarnum á miðvikudaginn þegar Manchester United hafði betur á Brúnni, 1-2.

Lampard viðurkennir að deildabikarinn var ekki efstur á lista Chelsea yfir titla sem þeir ætluðu að leggja allt í sölurnar til að vinna. Meistaradeildin er þar ofar á blaði þar sem Chelsea er í ágætis málum.

„Það hefur gengið vel undanfarið. Við höfum hins vegar átt erfiða leiki í Meistaradeildinni en þar er stefnan að komast upp úr riðlinum. Í deildinni erum við í mjög góðum málum."

„Þessar keppnir skipta okkur mestu máli en auðvitað viljum við alltaf vinna leiki og gera okkur besta," sagði Lampard.

Lampard fer með sína menn í heimsókn til botnliðs Watford annað kvöld.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner