Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 01. nóvember 2019 20:50
Ívan Guðjón Baldursson
Pique: Við vöruðum Neymar við PSG
Mynd: Getty Images
Gerard Pique og liðsfélagar hans hjá Barcelona voru tilbúnir til að fresta launagreiðslum til að geta fengið Neymar til sín frá PSG í sumar.

Ekkert varð úr skiptunum en Neymar hélt því ekki leyndu að hann vildi skipta um félag.

Pique tjáði sig um Neymar í viðtali á dögunum og sagði þar að hann hafi reynt að stöðva Neymar frá því að ganga í raðir PSG fyrir tveimur árum.

„Við vöruðum hann við félagaskiptunum til PSG. Við sögðum honum að hann væri á leið í fangelsi sem er búið til úr gulli," sagði Pique.

„Þessi félagaskipti sönnuðu að það getur allt gerst í fótboltaheiminum."
Athugasemdir
banner
banner
banner