fös 01. nóvember 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Þýskaland um helgina - Toppliðið mætir Leverkusen
Hvað gera Alfreð og félagar gegn Schalke?
Hvað gera Alfreð og félagar gegn Schalke?
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur 10. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar fer fram í kvöld þegar Hoffenheim tekur á móti Paderborn.

Það verður svo heldur meira um að vera á morgun þar sem það eru sex leikir á dagskrá. Topplið deildarinnar B. Mönchengladbach heimsækir Leverkusen klukkan 14:30, á sama tíma verður Bayern Munchen í heimsókn hjá Frankfurt.

Freiburg sem er í 3. sæti fer til Bremen þar sem þeir mæta heimamönnum í Werder Bremen. Það fer fram stórleikur þegar Dortmund og Wolfsburg mætast, leikurinn hefst klukkan 14:30. Heimamenn í Dortmund í 5. sæti en gestirnir í 4. sæti, aðeins munar einu stigi á liðunum.

Klukkan 17:30 fer fram grannaslagur í Berlínarborg þegar Union Berlín tekur á móti Hertha Berlín.

Á sunnudaginn fara fram tveir leikir, fyrri leikurinn er viðureign Fortuna Dusseldorf og Köln. Umferðinni lýkur svo með leik Augsburg og Schalke, Alfreð og félagar í Augsburg þurfa nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunni.

Föstudagur 31. október.
19:30 Hoffenheim - Paderborn

Laugardagur 1. nóvember.
14:30 Eintracht Frankfurt - Bayern
14:30 Werder Bremen - Freiburg
14:30 RB Leipzig - Mainz
14:30 Leverkusen - B. Mönchengladbach
14:30 Dortmund - Wolfsburg
17:30 Union Berlin - Hertha Berlin

Sunnudagur 2. nóvember.
14:30 Fortuna Dusseldorf - Köln
17:00 Augsburg - Schalke 04
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner