01.11.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky segir Laimer vera ofarlega á lista hjá Liverpool


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það er ekki leyndarmál að Liverpool vantar nýjan leikmann á miðjuna og eru margir öflugir leikmenn á lista hjá félaginu.
Konrad Laimer, austurrískur miðjumaður RB Leipzig, er ofarlega á listanum og verður falur á frjálsri sölu næsta sumar.
Laimer er 25 ára gamall og greinir Sky Germany frá því að hann ætli ekki að skrifa undir nýjan samning við Leipzig. Hann hefur mikinn áhuga á að spila í ensku úrvalsdeildinni en stórveldin FC Bayern og PSG vilja einnig fá hann til sín.
Laimer á 24 landsleiki að baki fyrir Austurríki og tæpa 200 keppnisleiki fyrir Leipzig.
