Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 01. desember 2019 15:52
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Man Utd og Aston Villa: Mata kemur inn í liðið
Juan Mata er í liðinu í dag
Juan Mata er í liðinu í dag
Mynd: Getty Images
Manchester United og Aston Villa eigast við í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í dag en helstu byrjunarliðsmenn United fengu frí í Evrópudeildinni á dögunum.

Það er gjörólíkt liðið sem mætti Astana og sem spilar við Aston Villa í dag en Juan Mata kemur inn í liðið.

Brandon Williams er áfram í vinstri bakverðinum en hér má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Manchester United: De Gea; Wan-Bissaka, Lindelöf, Maguire, Williams; Pereira, Fred; James, Mata, Rashford; Martial.

Byrjunarlið Aston Villa: Heaton; Guilbert, Konsa, Mings, Targett; Luiz, McGinn, Hourihane; El Ghazi, Grealish, Wesley.
Athugasemdir
banner
banner
banner