 
                                                                                                            
                        
                                    
                                                    
                Þýskaland er úr leik á HM eftir að hafa fallið úr leik í riðlakeppninni í kvöld þrátt fyrir sigur á Kosta Ríka.
Liðið tapaði mjög óvænt gegn Japan í fyrstu umferð riðlakeppninnar en komu sterkir til baka og gerðu jafntefli gegn Spánverjum og enduðu á sigri í kvöld en það var ekki nóg.
Spánn tapaði óvænt gegn Japan sem gerði útslagið fyrir Þjóðverja.
Þetta kemur Þjóðverjum í opna skjöldu en liðið ætlaðist væntanlega til að gera mun betur eftir vonbrigðin árið 2018 þegar liðið féll einnig úr leik í riðlakeppninni.
„Eftir Rússland 2018 héldum við að þetta gæti ekki orðið verra. 'I dag vitum við að þetta verður verra," segir á þýska miðlinum Bild.
Sóknarleikur liðsins hefur verið mikið gagnrýndur en liðið skoraði aðeins tvö mörk í fyrstu tveimur leikjunum.

 
         
         
     
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
        
