Fotbolti.net
01.12.22 - 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Neuer orðinn leikjahæsti markvörðurinn í sögu HM

Neuer orðinn leikjahæsti markvörðurinn í sögu HM
Canon

Mynd: EPA

Manuel Neuer markvörður þýska landsliðsins er að leika sinn 19. landsleik á HM en hann er í rammanum gegn Kosta Ríka þessa stundina.

Enginn markvörður hefur leikið jafnmarga leiki á HM en hann fór framúr landa sínum Sepp Maier og Brasilíumanninum Claudio Taffarel sem léku 18 leiki.

Þetta er fjórða heimsmeistaramótið sem hann tekur þátt í en það fyrsta var árið 2010 í Suður Afríku. Þýskaland fór alla leið í undanúrslit þá en tapaði gegn Spánverjum. Liðið vann Úrúgvæ í leiknum um þriðja sætið.

Í Brasilíu fjórum árum síðar stóðu Þjóðverjar uppi sem sigurvegarar. Þessi 36 ára gamli markvörður hefur leikið 116 landsleiki á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.