Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 02. febrúar 2023 15:30
Elvar Geir Magnússon
Mbappe ekki með PSG í fyrri leikum gegn Bayern
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, stórstjarna Paris St-Germain, mun missa af fyrri leiknum gegn Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Franski landsliðsmaðurinn meiddist í 3-1 sigri gegn Montpellier og verður frá í þrjár vikur.

Mbappe klúðraði tveimur vítaspyrnum í leiknum og klúðraði fyrir opnu marki áður en hann fór meiddur af velli eftir 21 mínútu.

PSG tekur á móti Þýskalandsmeisturum Bayern þriðjudaginn 14. febrúar. Mbappe missir einnig af bikarleik gegn Marseille 8. febrúar og deildarleik gegn hans fyrrum félagi Mónakó þremur dögum síðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner