Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. febrúar 2023 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var orðaður við Man Utd en samþykkir núna að fara annað
Houssem Aouar.
Houssem Aouar.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Houssem Aouar var orðaður við Manchester United á lokadegi félagaskiptagluggans.

Aouar er 24 ára gamall miðjumaður en samningur hans við Lyon í Frakklandi rennur út eftir leiktíðina.

Man Utd endaði á því að fá Marcel Sabitzer á láni frá Bayern München en samkvæmt heimildum Goal þá er Aouar núna búinn að samþykkja samning hjá öðru félagi.

Hann er búinn að gera samning við Real Betis á Spáni og mun fara þangað eftir leiktíðina. Þar hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn, Nabil Fekir.

Inter og Sevilla ræddu einnig við hann en hann taldi það best að fara til Betis.
Athugasemdir
banner
banner
banner