KSÍ auglýsir byrjendanámskeið fyrir dómara sem verður haldið í höfuðstövðum KSÍ fimmtudaginn 7. maí klukkan 18:00.
Aðgangur er ókeypis og er námskeiðið, sem varir í um tvær klukkustundir, opið öllum sem hafa náð 15 ára aldri.
Af vef KSÍ:
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Hámarksþátttaka er 25 manns og einungis þeir sem hafa skráð sig á netfangið hér að neðan og fengið staðfestingu á þátttöku fá að sitja námskeiðið.
Skráning er hafin á [email protected]
Athugasemdir