lau 02. maí 2020 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daniel James: Óraunverulegt að spila með hetjunni sinni
Mynd: Getty Images
Daniel James gekk í raðir Manchester United frá Swansea City síðasta sumar. James fékk þar tækifæri á að spila með hetjunni sinni úr æsku, Juan Mata.

James hafði spilað eina leiktíð með Swansea í Championship áður en United kom og sótti hann og faf honum tækifæri til að spila með fyrirmyndinni sinni. „Allir horfa upp til Lionel Messi en ég verð að velja Juan Mata. Hann er sá leikmaður sem ég hef alltaf horft upp til," sagði James um hver hafði verið hans hetja í fótboltanum þegar hann var yngri.

„Það var skrýtið þegar ég hitti hann í fyrsta skiptið. Að alast upp og horfa upp til einhvers... svo ertu farinn að æfa og spila með sömu manneskju. Hann veitir mér innblástur."

„Þegar ég hitti hann í fyrsta skiptið sagði hann við mig: 'Ég veit að þetta er stórt skref fyrir þig, ef þig vantar eitthvað þá ertu með númerið mitt og ef þú vilt einhvertímann ræða hlutina þá er ég til staðar.' Það var frábært fyrir mig að heyra,"
sagði James.

„Að spila með manninum sem ég leit upp til er óraunverulegt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner