Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, segir að samherji sinn Virgil van Dijk sé besti varnarmaður í heiminum í dag.
„Virg er besti varnarmaður í heimi og ég elska að hafa hann vinstra megin með mér. Við eigum gott samband innan og utan vallar og við hjálpum hvor öðrum. Sérstaklega innan vallar," sagði Robertson.
„Þessi stóri náungi er algjör fagmaður í öllu sem hann gerir. Hann hugsar svo vel um sig innan og utan vallar og margir líta upp til hans, þar á meðal ég."
„Hann er stórkostlegur leiðtogi og frábær náungi. Ég elska að spila með honum og hafa hann með mér í vörninni. Síðan hann skrifaði undir hefur hann hjálpað okkur mikið."
Athugasemdir