Seinni hluti 16-liða úrslitanna í Heimsmeistarakeppninni í Rússlandi hefst á þessum geggjaða mánudegi. Fjórir leikir eru búnir og fjórir leikir eru eftir.
Athyglisverð úrslit áttu sér stað í gær þegar Rússland vann Spánverja. Fáum við fleiri óvænt úrslit í dag?
Athyglisverð úrslit áttu sér stað í gær þegar Rússland vann Spánverja. Fáum við fleiri óvænt úrslit í dag?
Í fyrri leik dagsins, klukkan 14:00, eigast Brasilía og Mexíkó við. Margir telja Brasilíu vera sigurstranglegasta liðið sem eftir er. Í seinni leiknum spilar Belgía við Japan.
Spámenn dagsins hjá Fótbolta.net eru Guðný Árnadóttir og Jonathan Hendrickx.
Leikir dagsins:
14:00 Brasilía - Mexíkó (Samara)
18:00 Belgía - Japan (Rostov-On-Don)
Athugasemdir