mán 02. júlí 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mertens vonast til að vinir sínir fái endurgreiðslu
Dries Mertens.
Dries Mertens.
Mynd: Getty Images
Dries Mertens vonast til þess að skora fullt af mörkum á HM í Rússlandi svo hann geti hjálpað félögum sínum að vinna frítt sjónvarpstæki.

Rafvöruframleiðandinn Krefel hefur boðið belgískum viðskiptavinum sínum fulla endurgreiðslu á nýlega keyptum sjónvarpstækjum ef Belgía skorar 16 mörk á Heimsmeistaramótinu.

Belgía skoraði níu mörk í riðlakeppninni og skoraði Mertens eitt þeirra. Ef allt fer á besta veg fær liðið fjögur tækifæri í viðbót til þess að bæta við sjö mörkum.

Belgía spilar við Japan í 16-liða úrslitunum í kvöld.

„Vinir mínir keyptu sér sjónvarp svo ég er að hugsa um það," sagði Mertens léttur samkvæmt BBC.

„Með gæðaleikmenn eins og Romelu (Lukaku) og Eden (Hazard) þá getum við skapað mikla hættu."

Leikur Belgíu og Japan hefst klukkan 18:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner