Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 02. júlí 2018 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar svarar fyrir sig: Tilraun til að gera lítið úr mér
Mynd: Getty Images
Neymar var gagnrýndur harkalega fyrir leikaraskap sinn í 2-0 sigri Brasilíu gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag.

Neymar var maður leiksins þar sem hann skoraði og lagði upp. Juan Carlos Osorio, landsliðsþjálfari Mexíkóa, var meðal þeirra fjölmörgu sem hraunuðu yfir brasilísku stórstjörnuna.

Neymar gefur lítið fyrir gagnrýnina og forðaðist að tala um eigin leikaraskap.

„Ég held að þetta sé tilraun til að gera lítið úr mér. Ég hlusta ekki mikið á gagnrýni, hvort sem hún er neikvæð eða jákvæð, því hún getur breytt hugsunarhætti leikmanna. Ég hef séð það gerast," sagði Neymar.

„Ég talaði ekki við fjölmiðla strax eftir leikinn því fólk var alltof æst. Ég veit ekki hvort aðrir séu hérna bara til að sýna sig, en ég er hér einungis til að vinna heimsmeistaramótið með liðsfélögum mínum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner