Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. júlí 2018 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar: Þeir töluðu of mikið og fara núna heim
Mynd: Getty Images
Neymar var maður leiksins er Brasilía sló Mexíkó úr leik í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Hann skoraði fyrra mark leiksins og lagði það síðara upp.

Neymar fangaði athygli áhorfenda með hæfileikum sínum en fékk enn meiri athygli fyrir listræna tilburði, þar sem hann veltist um völlinn í sárum sínum stóran part leiksins.

„Þeir töluðu of mikið og fara núna heim," sagði Neymar að leikslokum.

„Mexíkó er með gott lið og þetta var erfiður leikur, en við sýndum mikil gæði og það gerði herslumuninn. Við sóknarmennirnir vitum að það nægir að skora til að vinna, því vörnin okkar er í algjörum heimsklassa."

Neymar var spurður út í leikaraskapinn sinn, sérstaklega atvik sem átti sér stað út fyrir hliðarlínuna þar sem Miguel Layun steig á Neymar, sem byrjaði að veltast um af sársauka.

„Þetta var ósanngjarnt, boltinn var ekki í leik og við vorum ekki einu sinni inná vellinum," sagði Neymar um traðkið.

Brasilía mætir annað hvort Belgíu eða Japan í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner