Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. júlí 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Sergio Ramos: Fer með grátt skegg á næsta HM
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn sterki Sergio Ramos segist ekki ætla að hætta að spila með spænska landsliðinu á næstunni.

Hinn 32 ára gamli Ramos var svekktur eftir tap Spánverja gegn Rússum í 16-liða úrslitum HM í gær en hann ætlar að mæta á HM í Katar árið 2022.

„Þetta er mjög erfitt. Við höfum lagt marga klukkutíma og mikið í þetta," sagði Ramos í tilfinningaríku viðtali eftir leik.

„Kannski var þetta ekki okkar besti leikur en við förum heim án þess að hafa tapað leik."

„Ég vil halda áfram að spila með spænska landsliðinu í mörg ár því að nú fer ég heim með mikinn sársauka. Ég fer til Katar með grátt skegg ef á þarf að halda."

Athugasemdir
banner
banner
banner