Hlynur Atli Magnússon, fyrirliði Fram, mun ekki koma meira við sögu á þessu tímabili í Inkasso-deildinni.
Hlynur meiddist illa gegn Gróttu á dögunum og eftir rannsóknir kom í ljós að brot er í þremur hryggjaliðum.
„Ég féll harkalega á bakið eftir skallabaráttu þar sem mér fannst hann beygja sig undir mig," sagði Hlynur um meiðslin í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
Hlynur hafði leikið alla sjö leiki Fram í sumar áður en hann varð fyrir meiðslunum.
Fram er í 3. sæti í Inkasso-deildinni en liðið mætir Þór í tíundu umferðinni á föstudagskvöld.

Fyrirliðinn okkar Hlynur Atli Magnússon verður því miður ekki meira með það sem eftirlifir þessu tímabili. Hlynur meiddist illa í leik Fram og Gróttu. Eftir rannsóknir kom í ljós að brot er í þremur hryggjaliðum. Við óskum Hlyn góðs bata. #FramtíðinErOkkar #fotboltinet pic.twitter.com/qF4RJDPUij
— FRAM knattspyrna (@FRAMknattspyrna) July 2, 2019
Athugasemdir