Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. júlí 2019 16:13
Magnús Már Einarsson
ÍBV í viðræðum við Sindra Björnsson
Sindri Björnsson.
Sindri Björnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV er í viðræðum við Sindra Björnsson, miðjumann Vals, en þetta kom fram í Innkastinu á Fótbolta.net í gær.

Fleiri félög hafa sýnt Sindra áhuga og líkur eru á að hann færi sig um set á næstunni.

Hinn 24 ára gamli Sindri var í námi í Bandaríkjunum síðastliðinn vetur en hann hefur byrjað einn leik með Val í Pepsi-Max deildinni í sumar.

Sindri er uppalinn hjá Leikni R. en hann gekk til liðs við Val fyrir sumarið 2016.

Samtals hefur Sindri spilað 44 leiki í Pepsi-deildinni á ferlinum en hann á að baki fimm leiki með U21 árs landsliði Íslands.
Athugasemdir
banner
banner