Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. júlí 2019 12:01
Magnús Már Einarsson
Leicester hafnar tilboði Man Utd í Maguire
Mynd: Getty Images
Leicester hefur hafnað 70 milljóna pund tilboði frá Manchester United í varnarmanninn Harry Maguire. Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Manchester United hækkaði í dag tilboð sitt úr 65 milljónum punda upp í 70 milljónir punda en Leicester þykir það ekki vera nóg.

Manchester United keypti Aaron Wan-Bissaka frá Crystal Palace á 50 milljónir punda á dögunum en Leicester telur að Maguire sé mun verðmætari eftir frammistöðu hans með liðinu og enska landsliðinu undanfarin ár.

Manchester City er einnig á eftir Maguire og áhugavert verður að sjá hvernig baráttan um hann endar.
Athugasemdir
banner
banner
banner