Tanguy Ndombele, miðjumaður Lyon, er mættur í læknisskoðun hjá Tottenham.
Ndombele verður dýrasti leikmaðurinn í sögu Tottenham en félagið er að kaupa hann á 65 milljónir punda.
Hinn 22 ára gamli Ndombele mun skrifa undir fimm ára samning við Tottenham en reiknað er með að félagaskiptin klárist síðdegis í dag.

Einungis eitt ár er síðan Lyon keypti Ndombele á sjö milljónir punda frá Amiens.
Tottenham keypti engan leikmann í fyrra en fyrr í dag kláraði félagið fyrstu kaup sín í 517 daga þegar kantmaðurinn Jack Clarke kom frá Leeds.
Athugasemdir