Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 02. júlí 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Stefan Ljubicic á reynslu hjá Öster
Stefán Alexander Ljubicic.
Stefán Alexander Ljubicic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Alexander Ljubicic er þessa á reynslu hjá Öster í sænsku B-deildinni en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Hinn tvítugi Stefán er án félags í augnablikinu en samningur hans hjá Brighton var að renna út.

Stefán lék í yngri flokkum Keflavíkur en þessi U21 árs landsliðsmaður Íslands hefur verið hjá Brighton síðan árið 2016.

Á síðasta tímabili var Stefán á láni hjá Eastbourne í ensku utandeildinni.

Öster er í fimmtánda og næstneðsta sæti í sænsku B-deildinni, stigi frá umspili.
Athugasemdir
banner
banner
banner