Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. september 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Adrian fær ekkert frí - Æfir aukalega í landsleikjahléinu
Mynd: Getty Images
Þeir leikmenn Liverpool sem eru ekki á leið í landsliðsverkefni frá frí frá æfingum næstu dagana. Það sama á hins vegar ekki við um markvörðinn Adrian.

Adrian kom til Liverpool í síðasta mánuði og hélt í fyrsta skipti hreinu gegn Burnley um helgina.

Þessi fyrrum markvörður West Ham mun æfa aukalega með John Achterberg, markmannsþjálfara Liverpool, í vikunni.

Adrian mun sérstaklega vinna í sendingum út frá marki en hann hefur verið í smá veseni í þeim í byrjun tímabils.

Adrian var án félags í sumar og hafði æft með liði í sjöttu deild á Spáni áður en hann kom til Liverpool. Hann missti síðan einnig úr æfingar eftir að hafa meiðst á ökkla þegar stuðningsmaður rann á hann í fagnaðarlátum eftir Ofurbikarinn á dögunum.
Athugasemdir
banner