Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 02. september 2019 21:59
Helga Katrín Jónsdóttir
Ásta Eir: Markmiðið var að taka 6 stig úr þessum leikjum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tók í kvöld á móti Slóvakíu í undankeppni EM og sigruðu stelpurnar okkar 1:0. Ásta Eir fékk tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld og var sátt í leikslok:

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Slóvakía

"Mér líður bara mjög vel, það var virkilega gott að klára þetta. Við vissum að þetta yrði þolinmæðisvinna og við vorum að spila vel og gott að klára þetta í seinni hálfleik."

"Mér fannst við vera að gera þetta vel. Við vorum að búa til fullt af færum í fyrri og seinni hálfleik og svona heilt yfir erum við mjög sáttar við leikinn."

"Þær voru öflugar, við vissum að þær yrðu hættulegar þegar þær kæmust í skyndisóknir og þær gerðu vel í því en mér fannst við verjast vel og leysa allt sem kom upp. Þær eru fastar fyrir og eru með hörkuleikmenn þarna inni en mér fannst við gera betur í leiknum."

Hvenær frétti Ásta að hún myndi byrja leikinn?

"Eftir æfingu daginn eftir síðasta leik þannig að ég hafði nokkra daga til að hugsa þetta og meðtaka það og undirbúa mig vel."

Hvernig upplifði Ásta eigin frammistöðu í leiknum?

"Já ég er bara heilt yfir frekar sátt. Auðvitað er alltaf hægt að gera aðeins betur en svona heilt yfir sátt með mitt í dag."

Þá er fyrstu tveimur leikjunum í undankeppninni lokið og 6 stig í hús.

"Já virkilega góð byrjun, bara geggjað verkefni síðustu daga. Markmiðið var að taka 6 stig út úr þessum leikjum og það tókst svo við erum allar mjög sáttar."

Viðtalið við Ástu má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner