Ísland og Slóvakía mætast í undankeppni EM 2021 á Laugardalsvelli í kvöld, flautað verður til leiks klukkan 18:45.
Byrjunarlið Íslands hefur verið birt en Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá 4-1 sigrinum á Ungverjum síðastliðinn fimmtudag.
Þær Ásta Eir, Fanndís og Svava Rós koma inn í liðið. Sif, Hlín og Agla detta út úr byrjunarliðinu frá síðasta leik.
Hér að neðan má sjá byrjunarlið Íslands.
Byrjunarlið Íslands:
Sandra Sigurðardóttir
Ásta Eir Árnadóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Fanndís Friðriksdóttir
Elín Metta Jensen
Our starting lineup against Slovakia!
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 2, 2019
Byrjunarlið Íslands gegn Slóvakíu!
#LeiðinTilEnglands #dottir pic.twitter.com/M6XlNKWNg8
Athugasemdir