Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 02. september 2019 22:13
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Dagný: Sem betur fer nýtti Elín færið sitt
Icelandair
Dagný í leiknum gegn Slóvakíu í kvöld.
Dagný í leiknum gegn Slóvakíu í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var bara allt í lagi frammistaða, við héldum vel í boltann en Slóvakarnir spiluðu þéttan varnarleik. Stundum hefðum við kannski getað spilað boltanum hraðar til að opna þær fyrr en sem betur fer nýtti Elín færið sitt. Við fengum 3 stig í dag en hefðum getað verið betri á köflum, “ sagði Dagný Brynjarsdóttir eftir 1-0 sigur gegn þéttu liði Slóvakíu á Laugardalsvelli í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Slóvakía

„Mér fannst þær ósköp svipaðar og Ungverjaland en kannski aðeins skipulagðari í sínum varnarleik, þéttari og erfiðara að opna þær.“

Ísland átti í erfiðleikum með að skapa færi þrátt fyrir að vera mun meira með boltann í leiknum.

„Við vissum allan tímann þegar við fórum inn í þennan leik að við þyrftum að vera þolinmóðar og nýta færin þegar þau myndu koma. En við höfðum allan tímann trú á því að við myndum skora. “

Þrátt fyrir að Slóvakarnir væru ekki mikið með boltann komust þær í eitt álitlegt færi undir lok leiksins í stöðunni 1-0.

„Það fór alveg gæsahúð um mann, maður var alveg svolítið stressaður þegar hún komst þarna ein á móti markmanni en það fór ekki inn þannig maður þarf ekki að pæla í því lengur.“

Sif var ekki í leikmannahóp Íslands í kvöld þar sem faðir hennar, Atli Eðvaldsson lést eftir erfið veikindi fyrr í dag. Dagný viðurkenndi að dagurinn hefði verið erfiður.

„Við ákváðum það í dag þegar við fórum út á völlinn að við myndum spila fyrir Sif og fjölskyldu hennar og ég er bara ánægð að við gátum unnið í dag,“ sagði Dagný að lokum.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner