Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 02. september 2019 22:11
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Dortmund og Dusseldorf minnast Atla Eðvalds
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði og landsliðsþjálfari karla, lést í dag eftir hetjulega baráttu við krabbamein.

Atla hefur verið minnst víða í kvöld og á meðal þeirra sem minnast hans eru þýsku félögin Borussia Dortmund og Fortuna Dusseldorf.

Atli lék með Borussia Dortmund 1980-1981 frá Dortmund fór Atli til Dusseldorf þar sem hann lék frá 1981-1985.

Hjá Dortmund lék Atli 30 leiki og skoraði í þeim 11 mörk en hjá Dusseldorf skoraði hann 38 mörk í 122 leikjum.





Sjá einnig: Margir skrifa falleg minningarorð um Atla
Athugasemdir
banner
banner
banner