"Bara ótrúlega sátt, 6 stig í góðu verkefni. Tveir heimaleikir á móti liðum þar sem við eigum að vera betri en mér fannst við bara eiga skilið þessi 6 stig" sagði Glódís Perla með bros á vör eftir 1:0 sigur Íslands gegn Slóvakíu í undankeppni EM.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Slóvakía
"Við vorum búnar að ræða hvað þær spila þétt og að við þyrftum að vera þolinmóðar með boltann sem við náðum að gera. Það hefði verið auðvelt fyrir okkur að brotna og fara að reyna of erfiða hluti en við náum að halda boltanum okkar á milli og láta hann ganga og það gekk að lokum. Við hefðum alveg getað skorað fleiri mörk en 1:0 sigrarnir eru alltaf sætir líka."
Slóvakía hafði varla átt færi í leiknum þar til á 85. mínútu komust þær í gegn. Hvernig leið Glódísi á þeim tímapunkti?
"Ekki vel en ég hafði nú samt trú á því að Sandra hefði tekið þetta ef boltinn hefði farið á markið, hún er alltaf klár."
Íslenska landsliðið missti Sif úr hópnum í leiknum í dag. Fannst henni það trufla undirbúninginn fyrir leikinn?
"Nei Sif er náttúrlega bara frábær karakter í alla staði og myndi aldrei láta sjá á sér eða láta ganga yfir liðið. Hún er náttúrulega bara frábær fyrirmynd fyrir okkur allar um hvernig á að tækla eitthvað svona. Það er magnað að fylgjast með henni og við vorum búnar að ræða fyrir leikinn að við ætluðum að tileinka Sif og hennar fjölskyldu þennan leik. Þetta er mjög sorglegt en við styðjum hana 100% og söknuðum hennar auðvitað í leiknum."
Hvernig líst Glódísi á framhaldið með landsliðinu?
"Núna eigum við útileikjahrinu og það eru alltaf erfiðir leikir, sérstaklega að fara til Austur-Evrópu svo við verðum að halda áfram að vinna í okkar leik og gera enn betur."
Viðtalið við Glódísi má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir