Matteo Guendouzi, miðjumaður Arsenal, hefur verið valinn í franska landsliðshópinn í stað Paul Pogba.
Pogba hefur þurft að draga sig úr franska hópnum fyrir komandi leiki.
Hann lék allan leikinn í 1-1 jafntefli Manchester United gegn Southampton en fann fyrir ökklameiðslum eftir leikinn.
Pogba hefur þurft að draga sig úr franska hópnum fyrir komandi leiki.
Hann lék allan leikinn í 1-1 jafntefli Manchester United gegn Southampton en fann fyrir ökklameiðslum eftir leikinn.
Frakkland er með Íslandi í riðli og mætir Albaníu og Andorra.
Didier Deschamps landsliðsþjálfari hefur kallað Guendouzi upp úr U21 landsliðinu. Hann lék frábærlega í 2-2 jafntefli gegn Tottenham á sunnudaginn.
Athugasemdir