Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. september 2019 10:37
Magnús Már Einarsson
Icardi og Keylor Navas á leið til PSG
Mynd: Getty Images
Frönsku meistararnir í PSG eru að fá framherjann Mauro Icardi á láni frá Inter út tímabilið.

Argentínumaðurinn hefur verið orðaður við önnur félög að undanförnu og nú er útlit fyrir að hann spili með PSG í vetur.

Juventus og Roma vildu fá Icardi fyrr í sumar.

Félagaskiptaglugginn í Frakklandi lokar í dag og PSG er að vinna í að styrkja hópinn.

Félagið er einnig að fá markvörðinn Keylor Navas frá Real Madrid á 13,5 milljónir evra en staðfesting á þeim kaupum ætti að berast mjög fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner