Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, verður áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga frá félögum á Ítalíu.
Roma, AC Milan og Juventus hafa verið að reyna við Lovren en félagaskiptaglugginn á Ítalíu lokar í dag.
Sky segir að Liverpool vilji ekki láta Lovren fara þar sem Jurgen Klopp vill vera með fjóra miðverði í hópnum hjá sér.

Virgil van Dijk, Joel Matip og Joe Gomez eru allir á undan Lovren í röðinni hjá Liverpool.
Hinn þrítugi Lovren hefur ekki verið í leikmannahópi Liverpool hingað til á tímabilinu.
Athugasemdir