Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. september 2019 14:01
Magnús Már Einarsson
Simon Kjær til Atalanta - Skrtel farinn eftir einn mánuð
Simon Kjær.
Simon Kjær.
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Atalanta hefur fengið miðvörðinn Simon Kjær á láni frá Sevilla út tímabilið.

Hinn þrítugi Kjær á að fylla skarð Martin Skrtel sem er farinn frá Atalanta eftir einungis einn mánuð hjá félaginu.

Skrtel, sem er fyrrum varnarmaður Liverpool, lenti í rifrildi við Gian Piero Gasperini þjálfara Atalanta.

Skrtel var ósáttur við að fara ekki beint inn í liðið hjá Atalanta og þannig byrjaði rifrildið.

Danski landsliðsmaðurinn Kjær er nú mættur í hans stað en hann hefur meðal annars leikið með Palermo, Wolfsburg, Roma, Lille og Fenerbahce á ferlinum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner