Pétur Bjarnason gerði bæði mörk Vestra þegar liðið vann 2-1 sigur á Dalvík/Reyni í 2. deild karla um helgina.
Pétur kom Vestra yfir snemma leiks en fyrir Dalvík/Reyni jafnaði Viktor Daði Sævaldsson. Pétur var aftur á ferðinni í seinni hálfleik og gerði sigurmark Vestra á 53. mínútu.
Sigurmarkið var einstaklega glæsilegt. Hann fékk stórkostlega sendingu frá Elmari Atla Garðarssyni, fyrirliða Vestra, og skaut hann boltanum í fyrstu snertingu, á lofti, í markið.
Það skal tekið fram að Pétur er réttfættur og markið skorað með vinstri.
Vestri er eftir sigurinn á toppi deildarinnar með 39 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.
Sigurmark Péturs má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir