Byrjunarlið Fram og Leiknis: Siggi Höskulds gerir fimm breytingar

Leiknir og Fram mætast klukkan 17:15

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknir og Fram mætast klukkan 17:15

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fram og Leiknir R. mætast í neðri hluta Bestu deildarinnar klukkan 17:15 í Úlfarsárdalnum í dag. Þetta er fyrsta umferðin í neðri hlutanum.
Jón Sveinsson gerir tvær breytingar á liði Fram. Almarr Ormarsson og Óskar Jónsson koma inn fyrir Alex Frey Elísson og Brynjar Gauta Guðjónsson.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, gerir fimm breytingar á sínu liði. Birgir Baldvinsson er í banni í leiknum gegn Fram og er því ekki með.
Mikkel Dahl, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Dagur Austmann, Zean Dalügge og Brynjar Hlöðversson koma allir inn í lið Leiknis.