Erling Braut Haaland, framherji Manchester City, var auðvitað glaður eftir 6-3 sigurinn á nágrönnum þeirra í Manchester United í viðtali við Sky Sports eftir leikinn.
Haaland skoraði þrjú og lagði upp tvö í leiknum en liðsfélagi hans, Phil Foden, skoraði einnig þrennu.
Þeir mættu í viðtal til Sky Sports. Haaland var valinn maður leiksins en hann segir að þeir báðir hafi átt að fá verðlaun fyrir besta mann leiksins í dag.
„Þetta var ekki svo slæmt, við skoruðum sex mörk. Hvað er hægt að segja? Þetta er frábært og mjög gott. Þú sérð að við viljum alltaf sækja."
„Þetta er það sem ég elska við þetta lið. Við viljum alltaf sækja og mér finnst að við ættum að fá tvo bolta fyrir besta mann leiksins."
„Einn fyrir fyrri hálfleik og annan fyrir síðari hálfleikinn," sagði Haaland.
Athugasemdir