Bournemouth hélt hreinu og skoraði eitt mark gegn Manchester United í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikið var á heimavelli Bournemouth.
Mark frá Josh King tryggði Bournemouth sigurinn en United liðinu gekk lítið sem ekkert að brjóta niður varnarleik heimamanna.
Sky Sports tók saman einkunnir leikmanna liðanna fyrir frammistöðu þeirra í leiknum.
Nathan Ake og Harry Wilson fengu hæstu einkunn eða 8. Ake var valinn maður leiksins. Hjá Manchester United fékk Daniel James hæstu einkunn, 7.

Aaron Wan-Bissaka, Harry Maguire, Ashley Young og Andreas Perreira fengu allir 5 í einkunn í byrjunarliði United. Þá fékk Jesse Lingard einnig 5 fyrir innkomu sína af bekknum.
Einkunnir Sky Sports:
Bournemouth: Ramsdale (7), Smith (7), Steve Cook (7), Ake (8), Rico (6), Harry Wilson (8), Billing (6), Lerma (7), Fraser (7), King (7), Wilson (7).
Manchester United: De Gea (6), Wan-Bissaka (5), Maguire (5), Lindelof (6), Young (5), McTominay (6), Fred (6), Pereira (5), James (7), Martial (6), Rashford (6).
Varamenn: Lingard (5), Greenwood (6)
Athugasemdir