Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 02. nóvember 2019 18:58
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Lukaku hetja Inter - Sigurmark í uppbótartíma
Mynd: Getty Images
Bologna 1 - 2 Inter
1-0 Roberto Soriano ('59)
1-1 Romelu Lukaku ('75)
1-2 Romelu Lukaku ('91, víti)

Andri Fannar Baldursson var ekki í leikmannahópi Bologna sem tók á móti Inter í ítalska boltanum í dag.

Staðan var markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik og kom Roberto Soriano heimamönnum yfir í síðari hálfleik.

Romelu Lukaku jafnaði á 75. mínútu og gerði svo sigurmark í uppbótartíma úr vítaspyrnu sem Lautaro Martinez fiskaði.

Þetta eru afar mikilvæg stig fyrir Inter, sem er með tveggja stiga forystu á Juventus í toppbaráttunni. Juve á nágrannaslag við Torino í kvöld og getur endurheimt toppsætið.
Athugasemdir
banner
banner