Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 02. nóvember 2019 15:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Solskjær: Eitt töfraaugnablik tryggði sigurinn
Mynd: Getty Images
Bournemouth sigraði í dag Manchester United í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni.

Joshua King skoraði eina mark leiksins og það kom undir lok fyrri hálfleiks. King tók snyrtilega á móti fyrirgjöf Adam Smith, sneri sér vel í teignum og skoraði framhjá David de Gea.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, var í viðtalið við Match of the Day eftir leikinn.

„Þú ert alltaf niðurlútur þegar þú tapar og miðað við gengi okkar undanfarið þá vonuðumst við eftir þremur stigum. Þetta er skref til baka en við verðum að hrista þetta af okkur og taka stigin næst."

„Við gátum ekki nýtt okkur góða byrjun í leiknum og töfraaugnablik tryggði svo sigurinn fyrir þá, Ég verð að hrósa King fyrir markið og segja 'vel gert'."

Solskjær var spurður út í sóknarmenn sína í leiknum.

„Greenwood var óheppinn að skora ekki þegar hann skaut í stöngina. Þá fannst mér Rashford og Martial verjast vel í leiknum en lykillinn að sigri Bournemouth var fyrsta markið."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner