Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 02. desember 2017 13:00
Mate Dalmay
Beint HM flug Icelandair á leiki Íslands í Moskvu, Volgograd og Rostov komið í sölu
Icelandair
Íslendingar geta byrjað að bóka ferðir til Rússlands!
Íslendingar geta byrjað að bóka ferðir til Rússlands!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sala er hafin á beinu flugi Icelandair á leiki Íslands í riðlakeppninni á HM í Rússlandi á www.icelandair.is

Um er að ræða tveggja sólarhringa ferðir og innifalið er beint flug og hótel í tvær nætur, ferðir til og frá flugvelli og á leikvanginn og fararstjórn. Verðið er frá 175.000 kr. Í öllum tilvikum er flogið frá Íslandi daginn fyrir leik og komið til baka daginn eftir leik.

Ferðirnar þrjár eru eftirfarandi:

Flug til Moskvu á leik Íslands og Argentínu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 föstudaginn 15. júní og komið heim síðdegis sunnudaginn 17. júní.

Flug til Volgograd á leik Íslands og Nígeríu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 fimmtudaginn 21. júní og komið heim síðdegis laugardaginn 23. júní.

Flug til Rostov á leik Íslands og Króatíu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 mánudaginn 25. júní og komið heim síðdegis miðvikudaginn 27. júní.

www.icelandair.is/sport/hm2018


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner