Manchester United hafði betur gegn Arsenal í kvöld í fjörugum leik á Emirates leikvanginum.
Fyrir Manchester United skoruðu þeir Antonio Valencia og Jesse Lingard sem setti tvö. Alexandre Lacazette skoraði eina mark Arsenal í leiknum.
Það var hins vegar ekki markaskorari sem fékk hæstu einkunn Sky Sports eftir leik liðanna í kvöld, það var maðurinn sem stendur í markinu hjá Manchester United, David de Gea.
Einkunnir Arsenal: Cech (6), Koscielny (6), Mustafi (5), Monreal (5), Bellerin (6), Ramsey (6), Xhaka (5), Kolasinac (6), Ozil (6), Sanchez (6), Lacazette (6).
Varamenn: Iwobi (6), Welbeck (6), Giroud (6)
Einkunnir Manchester United: De Gea (9), Valencia (7), Lindelof (7), Smalling (7), Rojo (7), Young (8), Matic (8), Pogba (7), Lingard (8), Martial (7), Lukaku (7).
Varamenn: Herrera (6), Darmian (6), Rashford (Kom inná á 93 mínútu).
Maður leiksins: De Gea.
Athugasemdir